|
Gott að hafa við hendina:
|
17.01.2008 23:11:26 / hjari
Hæ verð að láta þennan flakka... Nemandi úr Samvinnuskólanum á Bifröst sótti um vinnu sem afgreiðslumaður í Kaupfélagi úti á landi. Þetta var svona alvöru kaupfélag þar sem hægt var að fá allt milli himins og jarðar. Kaupfélagsstjóranum leist vel á manninn þótt hann væri ungur og óreyndur og ákvað að taka hann til reynslu. Hann sagði manninum að mæta morguninn eftir og síðan myndi hann koma um kvöldið og athuga hvernig hefði gengið. Kvöldið eftir spurði hann unga manninn hvað hafði hann afgreitt marga viðskiptavini þennan fyrsta dag. 'Bara einn,' sagði drengurinn. Þetta fannst kaupfélagsstjóranum ekki mikið en spurði hvað hann hefði selt fyrir mikið. Fimm milljónir eitthundrað níutíu og þrjúþúsund' sagði afgreiðslumaðurinn við kaupfélagsstjórann. 'Hvað seldirðu honum eiginlega, rasaði kaufélagsstjórinn hissa? 'Jú, sjáðu til,'sagði drengurinn, 'fyrst seldi ég honum lítinn öngul, síðan seldi ég honum miðlungsstóran öngul, þá stóran öngul, svo veiðistöng og síðan spurði ég hann hvar hann ætlaði að veiða. Hann sagðist ætla að veiða í vatninu og þá sagði ég honum að hann þyrfti bát og seldi honum plastbát með 40 hestafla utanborðsmótor. Þá sagði maðurinn að hann gæti aldrei flutt bátinn á Daihatsuinum sínum svo ég fór með hann í véladeildina og seldi honum nýjan Landróver. ' Nú var andlitið hálfdottið af kaupfélagsstjóranum og hann sagði: 'Maðurinn kemur hér inn til að kaupa einn lítinn öngul og þú selur honum bæði bát og bíl.' 'Nei, nei,' sagði strákurinn. 'Hann kom hingað til að kaupa dömubindi handa konunni sinni og ég sagði við hann að fyrst að helgin væri hvort eð er ónýt hjá honum væri eins gott fyrir hann að fara að veiða!' Hahahahaaaaaa...... þetta er sko gott dæmi um okkur Íslendinga...
»
08.01.2008 18:38:15 / hjari
Hæ Two fleas had an arrangement to meet every summer in Miami for a vacation. Last year when one flea gets to Miami, he's shivering and shaking. The other flea asks him, "Why are you shaking so badly?" The first flea says, "I rode down here from New Jersey in the mustache of a guy on a Harley." The other flea responds saying, "That's the worst way to travel. Try what I do. Go to the New Jersey airport bar. Have a few drinks. While you are there, look for a nice stewardess. Crawl up her leg and nestle in where its warm and cozy. Its the best way to travel that I can think of." The first flea thanks the second flea and says he will give it a try next summer. A year goes by..... When the first flea shows up in Miami he is shivering and shaking again. The second flea says, "Didn't you try what I told you?" "Yes," says the first flea, "I did exactly as you said. I went to the New Jersey airport bar. I had a few drinks. Finally, this nice young stewardess came in. I crawled right up to her warm cozy spot. It was so nice and warm that I fell asleep. When I woke up, I was back in the mustache of a guy on a Harley. Hahahahahaahaaaaaaaaaaa
»
30.12.2007 17:32:41 / hjari
Hæ Við hér á Hvammabrautini erum búin að hafa yndisleg jól, þetta hefur gengið að óskum, fjöldskyldan er hér öll hjá okkur og við höfum komist í öll boð sem við verið boðin í. Indisleg jól, það er eins og alltaf með Húdý sys, maður var varla búin að renna niður jólasteikini þegar hún sendi út neiðarkall,,!!! við erum að flitja í dag og okkur vantar flutningarbíl,,??? ekki málið. Ég mætti í gjær kl 5:00 og þá var byrjað að tína í bílin, Gekk mjög hratt fyrir sig enda hörku tól sem voru mættir í flutninginn. Þegar var búið að filla bílin að húsgögnum og dóti, fórum við með það að Lagxahvísl 29, byrjuðum að tína út úr bílnum aftur þá gall í Einari, þegar við vorum að tala saman, þá vissi hann ekki að þegar hann vaknaði að hádegi þá æti hann að flitja í dag?? hann varð orðlaus yfir konu synni,, hahahaaaa Þetta gekk allt mjög vel, Margrét, Baldur og Mikael voru hjá Ástu frænku í Hafnafirði og voru hin ljúfustu lömb... Við óskum ykkur til hamingju með nýju íbúðina Hulda og Einar, hafið það hið allra besta um áramótinn.  Þegar við vorum búin að þessu þá fór ég heim, Nonna og Pétur voru í heimsókn, mykið fjör hahahaaaaaaaa Gleðilegt ár öll sömul sem við þekkjum og hafið það mjög gott í fárviðrinu sem er spáð...
»
23.12.2007 11:29:17 / hjari
Hæ Við óskum ykkur gleðileg jól, gott og farsælt komandi ár, þökkum það liðna. Gangið hægt um gleðinna dyr. Jóla kveðja....
»
04.12.2007 19:53:21 / hjari
Hæ
Ef þið sem kunnið á gítar þá ætu þið að lesa þetta.....
Listrænt frelsi tónlistarmanna hefur nú aukist
enn, því að þeir þurfa ekki lengur að hafa fyrir því að stilla
gítarinn sinn. Nýi Les Paul-gítarinn frá Gibson getur nefnilega
stillt sig sjálfur.
Vélmenni sem þýska fyrirtækið Tronical hannaði
í samastarfi við Gibson í Nashville og er sett á gítarinn stillir
hann á um tveim sekúndum. Tronical hefur boðið þessa nýju tækni,
„Powertune System,“ á netinu og í verslunum í Þýskalandi síðan í
mars, að því er fram kemur á vefsíðu fyrirtækisins.
Les Paul-gítarinn frá Gibson kemur á markaðinn
um allan heim á föstudaginn. Segir Gibson þetta einkum handhægt
fyrir byrjendur, sem eigi oft í erfiðleikum með stillingar.
Þetta verður hið ljúfa líf að spila á gítar, ef
maður hefur einn svona við hönd....
bæ í bili
»
03.12.2007 21:05:45 / hjari
Hæ 15 ára...eins og skellinaðra, hávær, höst og enginn getur látið sjá sig á slíku farartæki. 20 ára...eins og jeppi, erfitt að komast um borð, eyðir miklu, drif á vargur á vegleysum. 25 ára...eins og leigubíll, mjúk, fljót, en allt fyrir borgun. 30 ára...eins og flugvél, lætur bíða eftir sér, en þægileg ef menn þora og tíma að borga. 35 ára...eins og langferðabíll, mjúk, örugg og fer með þig alla leið. 40 ára...eins og sendibíll, mikið pláss, lítil þægindi. 45 ára...eins og strætó, opin í báða enda. 50 ára...eins og strandferðaskip, allir hafa gleymt því að ferðast með 55 ára...eins og reiðhjól, erfið, úrelt og aldrei í lagi. 60 ára...eins og ferðahandbókin, getur sagt þér flest um ferðalög. Haaaaaaaaahahahaaaaaa
»
26.11.2007 20:37:07 / hjari
Hæ Einn léttur úr firðinum! Kona ein í Hafnarfirð vaknaði eitt sinn snemma á sunnudagsmorgni ákvað að eiga rólegan og notalegan morgunn, hellti uppá kaffi, ristaðibrauð og kom sér vel fyrir. En einkvað vantaði til að fullkomna morguninn og það var Mogginn. Þar sem hún var kviknakin kom smá hik á hana en hún hugsaði með sér ,,það er svo snemmt að enginn er kominn á stjá." Svo að hún skellti sér niður stigann á loðbrókinni einni fata og sótti Moggann sinn. Þegar hún kom upp aftur sá hún að hurðin að íbúð hennar hafði lokast. Þarna stóð hún þarna í stigaganginum kviknakin með Moggann í höndunum og komst ekki inn til sín þá skyndilega heyrir hún útidyrnar opnaðar og fótatak þrammandi upp stigann. Nú voru góð ráð dýr en þar sem dísin var hreinræktaður Hafnfirðingur var hún fljót að finna lausn á vandanum. Hún tróð hausnum inn í ruslalúguna og þar hékk hún föst. Þá kom sjóari sem var að koma úr Smugunni þrammandi upp stigann og við honum blasti ber kvenamans botn. Hann var ekki lengi að hugsa sig um og skellti sér á kvenmanninn. Þegar hann hafði lokið sér af leit hann á kvenmanninn og sagði: ,, Bölvaðir asnar eru þessir Hafnfirðingar, að henda svona heillegum kvenmanni."
Hahahahahahahahaaaaaaaaaaa 
»
20.11.2007 22:59:02 / hjari
»
14.11.2007 21:51:19 / hjari
Hæ Hvað er títt !!! Hér kemur einn lítil saga úr bæjarlífinu..... Einn mánuð fram yfir ! Þegar ungur eiginmaður kemur heim eitt kvöldið tekur konan á móti honum með því að hlaupa upp um háls honum og segja; Ástin ég er kominn einn mánuð fram yfir. Ég er viss um að nú er ég ófrísk, heimilislæknirinn okkar sagði að hann gæti ekki fullvissað mig um fyrr en hann fengi niðurstöðu úr rannsókninni á morgun og við skyldum þegja yfir þessu þangað til. Að morgni næsta dags kom maður frá Orkuveitunni til þess að loka fyrir rafmagnið, þar sem ungu hjónin höfðu ekki greitt síðasta reikning. Hann hringdi dyrabjöllunni og þegar unga frúin kom til dyra sagði hann; "Þú ert kominn mánuð fram yfir". "Hvernig í ósköpunum veist þú það?" spurði unga frúin. "Nú það er allt svona skráð kyrfilega í tölvukerfi Orkuveitunnar" var svarið. "Heyrðu þetta sætti ég mig sko ekki við og ég ætla að tala við manninn minn í kvöld og hann mun örugglega hafa samband við ykkur á morgun" sagði unga frúin og skellti hurðinni. Þegar eiginmaðurinn kom heim fékk hann að heyra allt um persónunjósnir Orkuveitunnar og hann fór vitanlega öskuvondur á fund Alfreðs Þorsteinssonar morguninn eftir. "Heyrðu Alfreð þetta er nú algjörlega út í hött. Hvað eiginlega í ósköpunum gengur að ykkur, þið eruð með það í skrám ykkar að við séum komin mánuð fram yfir, hvern andskotann kemur ykkur það við?". "Slakaðu nú á þetta er ekkert mál, borgaðu okkur bara og þá tökum við þetta úr skránni okkar."svaraði Alfreð. "Borga ykkur, ertu ekki í lagi, nú ef ég hafna því hvað þá?" "Nú þá klippum við bara á og tökum þig úr sambandi." "Og hvað á konan mín þá að gera?" "Nú hún verður þá bara að nota kerti." Svaraði Alfreð. Hahahahaaaaaaaaaaa........ Heirumst
»
11.11.2007 00:06:05 / hjari
»
08.11.2007 20:50:08 / hjari
»
05.11.2007 20:14:48 / hjari
Hæ Það fer ekki á milli mála að þetta er tær snyld hjá lögregluni.. Uppátækjasamur lögregluforingi bauð 500 eftirlýstum glæpamönnum í partý hjá Ozzý Osbourne. 30 þeirra mættu og voru handteknir á staðnum. Ozzy sjálfum finnst hann hinsvegar hafa verið misnotaður.
Óhefðbundnar aðferðir lögreglustjórans Paul Laney fóru svo fyrir brjóstið á Ozzy að hann krefst nú opinberrar afsökunarbeiðni. Laney bauð mjög einfaldlega 500 glæpamönnum í samkvæmi á Fargo næturklúbbnum, sem er steinsnar frá stað þar sem Ozzy hélt sama kvöld tónleika með Rob Zombie. Af boðskortinu mátti ráða að samkvæmið væri í tengslum við tónleikana.
Þrjátíu mannanna bitu á agnið og dúsa nú í fangageymslum. Það mætti taka þetta upp hjá lögregluni hér á Íslandi ??? láta þá mæta í partí hjá t.d. Sálini, Bubba eða Megas...??? Tær snyld.. 
Sjáumst
»
02.11.2007 23:11:51 / hjari
Hææ Nemandinn kom heim úr skólanum og kallaði: Mamma mamma það er frí í skólanum á morgun. Það er Star Wars dagur hjá kennurunum! Þegar að mamman las miðann frá kennaranum kom í ljós að það var starfsdagur kennara daginn eftir! Kennarinn: Vitið þið að á hverri mínútu eignast kona barn? Nemandinn: Aumingja konan pabbinn var að koma með sex ára dóttur sína í skólann í fyrsta skipti. Hann hélt yfir henni langa ræðu um hvða hún yrði að vera duglega að læra. Stelpunni fannst ræða pabbans svo yfirgengileg að hún sagði við hann: -Já en pabbi, maður þarf nú ekki að læra allt fyrsta daginn!!!!
Og það er allt í lagi að kvitta  Bey í bili
»
29.10.2007 20:14:24 / hjari
Hæ og hæ Spáið í þetta! Ef við myndum ímynda okkur að heimurinn væri staður þar sem aðeins væri einn 100 manna bær, þá liti hann þannig út:
Þar væru : 57 Asíubúar 21 Evrópubúi 14 frá Western Hemisphere, both North and South 8 Afríkubúar
52 væru karlmenn 48 væru konur
70 væru ekki-hvítir 30 væru hvítir
30 væru kristinnar trúar 70 annarar trúar
89 væru gagnkynhneigðir 11 væru samkynhneigðir
6 einstaklingar ættu 59% af auðnum - og þeir væru allir frá USA
80 byggju ekki í húsi 70 væru ólæsir 1 væri við dauðans dyr; 1 að fæðast 1 (já aðeins 1) hefði menntun aðra en grunnskóla 1 ætti tölvu
Þegar litið er á heiminn frá svona samþjöppuðu sjónarhorni verður þörfin fyrir samþykki annara, skilningi og menntun allt í einu sýnilegri.
Og meira að hugsa um: Ef þú vaknaðir nokkurnveginn heilbrigð/ur í morgun, þá ert þú heppnari en sú milljón manna sem ekki lifa af þessa viku.
Ef þú hefur aldrei upplifað hættuna á stríði, hræðsluna við pyntingar eða sársaukan af hungri, þá ert þú betur sett/ur en 500 milljónir manna í heiminum.
Ef þú getur gengið inn í kirkjuna þína án þess að eiga á hættu að verða handtekin/n, pyntuð/aður eða drepin/n - þá ert þú betur sett/ur en 3 milljarðar manna í heiminum.
Ef þú átt mat í ísskápnum, föt í skápunum, þak yfir höfuðið og stað til að sofa á - þá ert þú ríkari en 75% af heiminum.
Ef þú átt pening í bankanum eða í veskinu - þá ert þú meðal ríkustu 8% í heiminum.
Ef foreldrar þínir eru ennþá á lífi og ennþá gift, þá ert þú mjög heppin/n, jafnvel í hinum vestræna heimi.
Ef þú getur lesið þessi skilaboð þá ert þú heppnari en rúmlega 2 milljarðar manna - sem eru alveg ólæsir.
Haaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa "á morgun kemur nýr dagur" og allt verður "hægt og hljótt"
»
28.10.2007 22:11:26 / hjari
Hæ
Hafið
þið lent á fólki sem skylur ekkert ?? 
Leiðbeiningar aftan á þekktri "meik" tegund:
"Do not use on children under 6 months old."
(auðvitað byrjar maður ekki að mála börnin sín
fyrr en þau eru orðin 7 mánaða!!!)
Leiðbeiningar á Sears hárblásurum:
"Do not use while sleeping"
(Einmitt þegar mér finnst skemmtilegast að dúlla í hárinu á
mér)
Þetta stóð á umbúðum utan af Dial sápu:
"Use like regular soap"
(Og hvernig á aftur að nota svoleiðis?)
Á umbúðum af SWANN frystimat:
"Serving suggestion: Defrost"
(Mundu samt...þetta er bara uppástunga)
Hótel lét baðhettu í boxi fylgja með hverju herbergi, og
á boxinu stóð:
"Fits one head."
(Sérðu ekki fyrir þér...einhverja tvo vitleysinga... með eina
baðhettu...)
Á botninum af Tiramisu dessertinum frá Tesco stendur:
"Do not turn upside down."
(Úps, of seinn)
Þetta stendur á búðing frá Marks & Spencer:
"Product will be hot after heating."
(Það er nefnilega það)
Á pakkningum af Rowenta straujárni:
"Do not iron clothes on body."
(En myndi það nú ekki spara mikinn tíma!)
Á hóstameðali fyrir börn frá Boots:
"Do not drive car or operate machinery"
(Þannig að Gunni litli fær ekkert að leika sér á
lyftaranum þegar hann kemur heim)
Á flösku af "Nytol sleep aid" má sjá þetta:
"Warning: may cause drowsiness"
(Maður skyldi nú rétt vona það!)
Hnífasett frá Kóreu var merkt þannig:
"Warning keep OUT OF children"
(okí dókí!!!)
Jólasería frá Kína var merkt á eftirfarandi hátt:
"For indoor or outdoor use only"
(En ekki hvar...???)
Matarvinnsluvél frá Japan var merkt svona:
"Not to be used for the other use."
(Ok...núna er ég orðinn mjög forvitin)
Hnetupoki frá Sainsburys: "Warning:contains nuts"
(Jamm... ég fer mjög varlega)
Á poka af hnetum frá Amerísku flugfélagi stóð þetta:
"Instructions: open packet, eat nuts"
(Imbafrítt eða hvað?)
Leiðbeiningar sem voru á miða með blá, hvít og
rauðköflóttri skyrtu segir:
"Munið að þvo liti aðskilda"
(Ehhh...já...áttu nokkuð skæri)
Leiðbeiningar á ónefndri örbylgju popp tegund segir manni
að "taka plastið af áður en sett er í örbylgju"
Málið er, að til að geta lesið leiðbeingarnar verður þú að vera
búinn að taka plastið af og fletta pokanum í sundur...
Framan á kassa af "Töfradóti" fyrir krakka, er mynd af
strák sem er klæddur eins og töframaður. Aftan á kassanum
stendur:
"Notice, little boy not included"
(Ohhhhh.......ég sem var farin að hlakka svo til að eignast
vin)
Ég keypti svona kisunammi fyrir köttinn minn. Á pokanum
stendur "new and improved shapes"
(Aaaa...einmitt það sem kötturinn minn er búinn að vera að nöldra
út af)
Lítill miði var festur á "Superman" búning, á honum
stóð:
"Warning: This cape will not make you fly"
(Núúúúú...þá kaupi ég hann ekki)
Á keðjusögum stendur oft viðvörunin "Do NOT touch the
rotating chain"
(Er það ekki nú nokkuð ljóst..haaaa??)
Eitt sem ég skil ekki "Waterproof" maskarar...á þeim
stendur:
"Washes off easily with water"
(Hmmm...hver er þá tilgangurinn?)
Má ekkert
minna...??
Hahahahaaaaaaaaaa
bæ í
bili
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|